<$BlogRSDUrl$>

Kemur sterkur inn..

þriðjudagur, desember 07, 2004

Jólin Nálgast óðum!!!

Ég hef verið að vinna dálítið síðustu da,ga og ekki nennt að blogga um ekki neitt.
Þegar ég fletti Mogganum síðustu helgi, rak ég augun í þetta forláta rafmagns nuddtæki. "Þetta er nú flott fyrir rabó í jólagjöf", hugsaði ég. Er eitthverskonar nýtískulega afsprenging af nálastungum til forna, og á að lækna allt og ekkert. Fór svo á mánudaginn upp í kringju á mínum jafnfljótum (allt önnur saga) og skundaði inn í Heilsubúðina og óskaði eftir einu tæki sem læknar allt frá vöðvabólgu til getuleysis.
Jújú, tækið fékk ég í hendurnar og spurði afgreiðslukonan hvort ég sér "klúbbnum", ég segist ekki vera það og borga fyrir tækið. Með fylgir eitthverjar pillur í boxi sem gjöf.

Hitti félaga mína úr liðinu á leiðinni út og sýni þeim þetta undraapparat sem allt læknar og gerir konur mjúkar sem leir. Þeim líst nú vel á og fara og kíkja á þetta meðan ég fer heim, stoltur með þessi kaup. " nú verður sko rabó ánægð með mig, draumatækið fundið"!!

Ég kem heim og fel hlutinn góða þar sem þetta á að vera Jólagjöfin í ár.
Þegar Rabó kemur heim get ég ekki beðið eftir Jólunum og gef henni tækið strax, svona sem "þú ert dugleg telpa" gjöf.
Og Rabó er voðalega ánægð með tækið sitt, virðist gera sitt gagn við vöðvabólgunni þrálátu.

En það eru vinsamleg tilmæli að ég sé ekki að fikta með styrkstillin á tækinu meða það er tengt við konuna, sem er að reyna að slaka á, því annað eins öskur hef ég ekki heyrt í lengri tíma (þetta var ekki öskur vellíðans, heldur vanlíðans).
Þar kom nú einn möguleiki tækisins í ljós, ég get kvalið með því, og datt mér nú í hug að það mætti reyna að beita því í hjartastoppi, Svona bara upp á grínið , "ALLIR FRÁ...STUÐA"...sko.....

P.S Félagi minn sem svo skoðaði tækið í búðinni, skráði sig í klúbbinn þeirra og fékk 25% afslátt af tækinu........ MÖRÐUR

sunnudagur, nóvember 28, 2004

Eins og einhverjir vita þá var stóreldur siðasta mánudag. Einhver 1000 tonn af dekkjum sem tóku upp á því að brenna til helvítis. Að sjálfsögðu mætti karlinn, enda survivor rétt að enda þegar pípið kom í símann (21:54).
Það hitti svona skemmtilega á að ég var með minn eldgalla í hreinsun hjá Fönn, en ég átti bara einn galla. Ég mætti samt sem áður á stöðina og gerðist reddari, allt þar til ég gaft upp á þessu fjörleysi og bara reddaði mér öðrum eldgalla. það hitti þannig á að félagi minn í sama árgangi er nýhættur og fann ég eldgallan hans inn á lager og tók traustataki, og fékk svo að eiga sem minn varagalla.

Fór þá á eldstað í annað sinn en núns klæddur réttu græjunum, en til að gera langa sögu stutta þá var ég aðalega að hella AFFF froðu ofan í stóra "Crash" bílinn frá keflarvíkurflugvelli, mér fannst ég vera að hella þessum dýra vökva ofan í ræsið, hann dældi þessum jafnfljótt út af sér.

En einnig fór ég í eina reykköfun með froðutrekt (græja sem er tengd við vatn+froðu) og fór upp á einn hauginn að "leggja froðuteppi" yfir bálið. Það gékk erfiðlegar þar sem útsýnið ekki var mikið og erfitt að fóta sig í þessu drasli.Náðum að slökkva í einum hólnum á þssum 30 mín sem það tók að tæma reykköfunartækin. Ég kom gjörsamlega rennandi blautur frá þessari vinnu, enda var ég að drekkja öllu í froðu og vatni, og mér þá líka.
þá tók við það erfiðasta, að halda á sér hita. Var nánast óvinnufær af kulda í nokkra klukkutíma, eða allaveganna höfðu afköstin eitthvað minnkað. Endaði á því að betla einhvern langermabol og gamla ullarpeysu frá einum starfmanni Hringrásar,og fór í svartann plastpoka utan um það svo rakinn frá eldjakkanum læki ekki í gegnum allt aftur, og vil ég þakka honum fyrir lánið.
Var að vinna þarna til klukkan c.a 11:40 þegar ég fór heim á stöð 0g þaðan heim að sofa.

Svaf í nokkra tíma og þurfti svo að mæta á mína vakt morguninn eftir. Það sem tók við var gífuleg vinna í frágangi og þrifum. Það er ekker grín að ganga frá og þvo nokkra km af slöngum og allan annan búnað sem notaður var. Það er semsagt búið að vera nóg að gera hjá okkur á vöktunum þessa dagana.

Ekki ómerkilegri maður en sjálfur Þórólfu Árnason Borgarstjóri kom til okkar á Föstudagsnæturvaktina og fékk að upplifa störf okkar slökkviliðsmanna. Hann var með okkur Gumma á sjúkrabíl um nóttina og fékk nokkur útköll. Þá tók hann líka smá törn á Neyðarbílnum. Karlinn stóð sig mjög vel, og er þetta topp maður í mínum augum. synd að hann sér að fara að hætta.......

Bless í bili

Hér eru útskýringar á orðunum Úrvinda og Gegnsósa....

Úrvinda; Verkfæri sem úrsmiðir geta ekki verið án, notað til að vinda úrverk á smáum sem stórum klukkum.
Hér þýtt; sá sem gjarnan vinnur mikið eða tekur sér lítið sem ekkert frí frá því sem hann tekur sér fyrir hendur, t.d slökkviliðsmaður. Slökkviliðsmaðurinn er þá mjög agressifur að taka sér aukavaktir og hans markmið er að vinna sem MEST og sofa sem MINNST.
Ekki þykir þessum manni tiltökumál að vaka heilu sólarhringana, til þess eins að hala inn smá aukatíma á launarseðilinn. Að jafnaði sefur þessi maður minna en meðalmaður ......

Gegnsósa; er þekkt orð yfir sósu sem ekki vill gegna, en í þessu samhengi er þetta orð notað yfir slökkviliðsmann sem hefur, vinnu sinnar og almannahagsmuna vegna, vöknað inn að beini. Þá eru allar flíkur sem hann klæðist svo rennandi blautar og gnístandi kaldar að hann hugsar ekki rökrétt lengur. Tngist oft stórum eldsvoðum, þar sem mikið vatn og Froða er notuð við slökkvistarf við afar slæm skilyrði..... Þessi maður þráir vatnsheldann slökkvigalla....



þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Orð dagsins eru Úrvinda og Gegnsósa. Meira út í það seinna.
Orð dagsins er Úrvinda og Gegnsósa. Meira út í það seinna.

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

V.2.1.4.7


Gott fólk. Það fer að styttast í jólinn og þá fara margir að hugsa sig um hvað Andri gæti langað í jólagjöf, hmhmhmhmh

Hvað með það, ég ætla að setja jólagjafalistann í gang og þá er það bara opinbert.

Littmann Stethoscope, master classic svart á lit, sjá vefslóð að neðan.
http://www.galls.com/style.html?style=DD802&assort=general_catalog

Bók að nafni Davinci lykillinn.

iTrip á iPodinn minn

IKEA vinnuborð, eins og Björgvin Tannlæknir var að fá sér.....

Rakspíra eða eitthverskonar annað sull sem lyktar vel.

Líffæra- og Lífeðlisfræði, seinna hefti. eymundsson.

Eitthvað í Íbúðina, T.D Hornbaðkar...... nei djók.

Einhverskonar tæknidót. Er forfallinn tækjafíkill.....

Frí í vinnunni um jólin

Og það sem þér dettur í hug.........

Þá er ekki aftur snúið, búið að skrifa undir kaupin á Höllinni í Hafnarfirði.
Við fáum semsagt afhent þann 5.janúar 2005, á hádegi.
Svo eins og flestir hafa nú tekið eftir er kominn vetur, já alvöru vetur.Ég var ekkert að trúa því að þessi snjór myndi endast í meira en 2 daga, og svo bara autt aftur.....
En þetta virðist ekki vera á förum, þannig að ég var beðinn um að setja vetrardekkin undir svo það gengi nú eitthvað í umferðinni. Mér fannst nú sumardekkinn alveg vera að standa sig með ágætum en ekki voru nú allir sammála því.

Ég fór því á stúfana í gær, og stóð til að setja keppnisdekkinn undir bílinn.En vit menn, það voru fleiri en ég sem höfðu fengið þessa sömu hugmynd, alveg varð ég gáttaður!!!!!!
Það var sama hvert ég fór, allstaðar var 3 km löng biðröð. (ég fór á 4 staði, sko)
Endaði á því að ég hringdi á staðinn sem ég fór fyrst á og fékk tíma daginn eftir (áðan).

Þannig að nún er jeppinn kominn á mudderana og tek ég á mig krók bara til þess að keyra inn í skafla.

AMEN

mánudagur, nóvember 15, 2004

Til hamingju Bjössi Lögga....... Þú varst gestur númer 300......

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Gott fólk..... er ég að verða latur að tjá mig eða ekki???

En hvað með það, nú er komið að því að tjá sig.
Fyrsta mál á dagskrá eru tilkynningar:

#1 Nýja talstöðin mín er kominn eftir sumarfríi í Ameríku. Húrra fyrir því
#2 Það er búið að ganga frá Íbúðarkaupunum, og aðeins eftir að skrifa undir og afhenda fullt af peningum. Veit einhver hvernig það fer fram?? á ég bara að labba út í banka og byðja gjaldkerann um að rétta mér seðlabunkann, og svo setja hann í hagkaupspoka og rölta með til Fasteignasalans til afhendingar??? Ekki leiðinlegt að borga íbúðina með alvöru peningum....

Pirringur vikunnar!!!!!!
Það er eitt sem pirrar mig frekar mikið, það er þegar ég er spurður hvar nýja íbúðin er staðsett, þá segja allir "í Hafnarfirði!! en það er svo langt í burtu..." Ok,ok.... langt í burtu frá hverju??? Hvað er svona lífsnauðsynlegt í RVK sem ekki er í HJF??? engin bíó, enginn miðbær RVK, Vinnan langt í burtu ofl.ofl.

En þeir sem þekkja mig vita að ég fer sárasjaldann í bíó, hvað þá niður í bæ um helgar (ekki nema í vinnunni), og það eru það góðar samgöngur milli RVK og HFJ að ég er jafn lengi að keyra þaðan til vinnu og úr Grafarvoginum.......

Eina sem ég þarf, er búð í grennd og íbúð sem ég er ánægður með, rúmgóð og mér líður vel í og með rólegt umhverfi.
Ekki íbúð sem er "vel staðsett", "stutt á djammið"," gamalt-fáir Fm2 á uppsprengdu verði" og "engin bílastæði what so ever!!!!"....

Sumir vilja staðsetningu, frekar en góða íbúð sem uppfyllir allar þína þarfir, ekki er ég að kommenta á það fólk!!!

Hilsen

sunnudagur, október 31, 2004

Ég er formlega fluttur úr Breiðholtinu,vonandi til frambúðar......
Kláraði að flytja restina í gær og svo fór konan í gærkveldi (takið eftir því að það var laugardagskvöld) og byrjaði hreingerninguna, enda mikið verk framundan. Hún var svo aðeins frameftir, tók m.a ofninn og eldavélina í gegn.
Svo kláraði ég restina og afhenti svo lyklana áðan.

Mér finnst gaman að flytja, jú nów, að fara í annað umhverfi. En að pakka er með því leiðinlegra sem ég þekki, hvað þá þegar til er nóg af drasli sem ég tími ekki að henda.... þetta eru allt gullmolar.

Núna unum við okkur bara vel á Hótel mömmu og með allt okkar hafurtask í einu herbergi, en húsgögnin dreifð út um allt hús.

Tilkynning: Kisan hefur strokið af heiman frá Bjössa yfirkattapassara, gerðist um helgina. Vonandi skilar hún sér fljótlega... :(

Nú fer að styttast í að ég fari á vaktin með mitt kvef. Er þetta síðasta vaktin á þessari vaktatörn.

Bæbæ

This page is powered by Blogger. Isn't yours?